Flýtilyklar
Brauðmolar
Ást og óvissa
-
Skotmarkið
Raleigh Lawton lögreglustjóra leist ekki á þetta.
Glerið í útidyrahurð hússins var mölbrotið og stólunum á veröndinni hafði verið velt um koll. Hvort um sig gat bent til einhverra átaka.
Þetta fékk hjartsláttinn til að herða á sér og hann dró byssuna upp, vonaði að hann þyrfti ekki að nota hana. Hann vonaði líka að það væri einhver skýring á brotna glerinu og stólunum. Kannski var allt í lagi með konuna sem bjó í þessu litla húsi. Raleigh hafði fleiri en eina ástæðu til að vona það því konan, Sonya Burnley, var komin níu mánuði á leið.
Hann hafði þekkt hana alla ævi og þess vegna hafði hann ekki hikað við að fara og athuga um hana þegar læknirinn í mæðraskoðuninni hringdi og sagði honum að Sonya hefði ekki mætt í eftirlit. Í stórborg hefði svona lagað ekki verið athugað en í litlum kúrekabæ eins og Durango Ridge vakti það vissulega athygli.
Rigningin dundi á honum þegar hann steig út úr bílnum. Hellirigning, enn meiri en veðurspár höfðu gert ráð fyrir. Hann var með regn úlpu meðferðis en vildi ekki tefja tímann með því að klæða sig í hana en hann var vel á verði meðan hann hljóp upp tröppurnar á veröndinni.
–Sonya? kallaði hann og lagði við hlustir.
Ekkert.
Hann tók um hurðarhúninn. Ólæst. Hann gekk inn, blótaði. Húsgögnin inni höfðu líka verið færð úr stað, brotinn lampi lá á gólfinu og stofuborðið á hliðinni. Raleigh tók upp símann og ætlaði að hringja eftir liðsauka en sá eitthvað útundan sér.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Morðtilraun
Jordan Gentry.
Egan hafði bara langað til að komast heim og sofa eitthvað því hann var að ljúka 12 tíma vakt og var dauðþreyttur en ef hann þurfti að hitta Jordan fengi hann líklega engan svefn á næstunni.
Hvern fjandann var hún annars að gera hérna?
Vegurinn lá að McCall-búgarðinum, engu öðru, sem þýddi að Jordan hafði líklega ætlað að hitta hann. Það gat samt ekki staðist, hún hafði ekki talað við hann í tvö ár og Egan vildi halda því þannig.
Hann stoppaði aftan við bílinn hennar og dró andann djúpt, vonaði að það myndi herða hann upp en þoldi ekki að þurfa að herða sig upp þegar Jordan var annars vegar. Hún hafði verið kærastan hans í framhaldsskóla en það var eins og mannsaldur hefði liðið. Núna var hún hluti af martraðarkenndum minningum sem hann var ekki ennþá búinn að finna leið til að gleyma.
Egan steig út og gekk eftir malarkantinum að bílstjórahliðinni. Bíllinn var ekki í gangi svo hann leit inn í hann, bjóst við að sjá Jordan undir stýri, tilbúna að kvarta yfir því að koma bílnum ekki í gang, en framljósin voru á og neyðarljósin líka svo rafgeymirinn var ekki dauður. Kannski var vélin í ólagiEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Morðæði
Hún átti sér líka minningar um og sá fyrir sér annað sem hafði gerst á þessum tveimur dögum.
Það yrði engin hjálp í að rifja það upp núna.
Hún varð að komast að bílnum sínum svo hún gæti ekið að gistiheimilinu í útjaðri bæjarins og komist að því hvers vegna þessi tilfinning um að eitthvað væri að vildi ekki hverfa.
Hún hélt áfram göngunni frá litla apótekinu að bílnum sem hún hafði lagt ofar í götunni.
Það hafði verið bjart þegar hún fór inn í apótekið fyrir 20 mínútum síðan til að bíða eftir lyfjunum sínum en núna var stormur á leiðinni og orðið dimmt og gangstéttirnar mannlausar.
Þarna voru mörg húsasund og skuggar, nóg til að taugarnar tækju viðbragð.
Rachel blótaði sjálfri sér í hljóði fyrir að hafa ekki lagt beint fyrir framan apótekið frekar en að leggja framan við kjörbúðina sem hún hafði farið í og verslað áður en hún fór í apótekið. Nú var kjörbúðin lokuð og allt annað í litla bænum Silver Creek virtist lokað líka.
Hún hafði valið þennan bæ af því að hann minnti hana að mörgu leyti á heimabæinn McCall Canyon en þar hafði margt slæmt gerst og gæti líka gerst hérna.
Um leið og hún sá bílinn ýtti hún á takkann á fjarstýringunni. Bremsuljósin blikkuðu, sýndu að dyrnar voru nú ólæstar, en um leið lýsti elding upp himininn. Nokkrum sekúndum síðar kom þruman, hávær og djúp, og kannski var það vegna þrumunnar sem hún heyrði ekki fótatakið.
Ekki fyrr en það var of seint.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Hefnigirni
Warren pabbi hans var enn á lífi en ástandið var tvísýnt. Court vildi ekki trúa því að hann myndi ekki lifa þetta af og ekki bara það heldur að hann myndi ekki hjálpa Court við að koma Raynu í fangelsi. Í þetta skipti kæmist hún ekki
upp með morð.
Court stoppaði framan við húsið hennar sem var ekki beinlínis í alfaraleið. Það átti að vísu við um mörg hús nálægt McCall-gljúfrinu.
Forfeður hans höfðu verið fyrstu íbúarnir í bænum fyrir rúmlega öld síðan og hann var nákvæmlega eins og þeir höfðu hugsað sér það, bændasamfélag.
Þeir höfðu örugglega ekki reiknað með að það yrði morðingi meðal íbúanna.
Court leit á hendurnar á sér. Stöðugar. Það var gott því honum leið alls ekki þannig. Reiðin kraumaði og hann varð að gæta þess að hafa nógu góða stjórn á sér til að geta handtekið Raynu. Hann ætlaði ekki að beita ofbeldi en myndi sennilega segja eitthvað sem hann ætti ekki að segja.
Bíllinn hennar stóð í innkeyrslunni sem þýddi sennilega að hún væri heima. Gott, hann hafði ekki langað til að fara að leita að henni Það kom samt svolítið á óvart að hún hafði ekki lagt á flótta. Sennilega myndi hún segja að hún væri
saklaus, að hún hefði ekki komið nálægt því að skjóta pabba hans í brjóstkassann, en það var staðreynd að hún hafði ástæðu til að drepa einhvern af McCall-ættinni.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Lokauppgjör
Sólin var að setjast en Jameson hélt áfram í rökkrinu og ringulreiðinni og svipaðist um eftir Gabriel bróður sínum sem var lögreglustjórinn.
Gabriel var ekki sá hávaxnasti á staðnum en hann var valdsmannslegur sem gerði það að verkum að það var auðvelt að finna hann. Jameson gekk til hans.
–Hversu slæmt er þetta? spurði Jameson.
Hann vissi auðvitað svarið að einhverju leyti.
Þetta hlaut að vera slæmt fyrst Gabriel hafði hringt í Texaslögregluna til að biðja um aðstoð.
Hann gerði það einungis ef verkefnið var of stórt fyrir hann og lögeglumennina sem voru undir hans stjórn en það gerðist ekki oft í litla bænum Blue River sem var heimabær þeirra.
–Við erum með tvö lík. Gabriel nikkaði í áttina að þeim skammt frá.
Tveir karlmenn lágu á túninu eins og þeir hefðu fallið þar. Svartur jeppi stóð á veginum skammt frá þeim, bílhurðirnar voru opnar og vélin enn í gangi.
Blóðið var á milli jeppans og mannanna svo það hafði sennilega verið skotið á þá í bílnum eða við hann og þeir síðan lagt af stað út á túnið, kannski til að flýja undan árásarmanninum eða elta þann sem skaut á þá. Svo höfðu þeir annað
hvort látist af sárum sínum eða verið skotnir aftur og þá til bana.
Jameson sneri sér aftur að bróður sínum.
–Hefur þú einhverja hugmynd um við hvað við erum að fást? Eiturlyfjaviðskipti sem enduðu illa?Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Saman á ný
Cameron Doran lögreglumaður var viss um að einhver væri að fylgjast með honum.
Hann lagði höndina yfir byssuna í hulstrinu við mittið og vonaði að ónotatilfinningin sem læddist niður hrygginn væri ekki rétt, vonaði að hann hefði líka rangt fyrir sér með það að einhver fylgdist með honum.
Hann vissi samt að svo var ekki.
Hann hafði verið í lögreglunni í 11 ár og það hafði bjargað honum einu sinni eða tvisvar að veita þessari tilfinningu athygli.
Hann var tilbúinn að draga byssuna upp og leit í kringum sig í bakgarðinum, sem var reyndar pínulítill. Húsið var á landareign búgarðsins Blue River og þarna voru stígar og slóðar sem hægt var að nota til að komast að húsinu hans.
Til dæmis gæti morðingi notað þá.
Þið deyið öll fljótlega.
Þetta stóð í nýjasta hótunarbréfinu sem Cameron hafði fengið fyrir tveimur dögum síðan.
Ekki beinlínis orð sem mann langaði til að lesa þegar maður opnaði póstinn sinn en hann var búinn að fá svo mörg að þau höfðu ekki sömu áhrif tilfinningalega og það fyrsta, sem hann fékk fyrir nokkrum mánuðum, hafði haft. Hann ætlaði samt
ekki að hunsa það.
Cameron horfði aftur í kringum sig og reyndi að sjá inn á milli trjánna en sá engan svo hann lauk við morgunkaffið og fór inn. Alla jafna hefði hann farið inn í barnaherbergið til að kveðja Isaac frænda sinn áður en hann fór í vinnuna, á lögreglustöðinni í Blue River, en núna gekk hann að glugganum yfir vaskinum og horfði út.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Skotmark morðingja
Theo Canton óskaði þess að það væri til betri aðferð til að stöðva morðingja, hvað sem var annað en að koma hingað á Beckettbúgarðinn til að trufla brúðkaup, en ef upplýsingarnar voru réttar yrði kannski annað morð framið í kvöld.
Kannski yrði Ivy Beckett myrt.
Kannski öll fjölskyldan og systir hans líka því þau yrðu undir sama þaki við athöfnina sem átti að fara fram á morgun.
Theo vildi alls ekki að það sama gerðist, sem hafði gerst fyrir 10 árum, þegar tvær manneskjur voru myrtar. Hann fékk hnút í magann við það eitt að hugsa um þetta og gamlar minningar rifjuðust upp. Hann varð samt að bægja þeim frá sér, annars myndi hann missa einbeitinguna.
Hann hafði komið nógu illa fram áður og þurfti ekki að bæta við það.
Theo tók síðustu beygjuna að búgarðinum og sá skreytingarnar á girðingunum, bláa satínborða sem blöktu í maígolunni. Engir vinnumenn voru sjáanlegir og enginn morðingi heldur en hann gæti verið hérna, tilbúinn til að ráðast til atlögu.
Síminn hringdi og hann sá nafnið á skjánum. Wesley Sanford, félagi hans í lögreglunni sem hafði látið Theo vita af því að morðingi gæti verið á leiðinni á búgarðinn. Theo hélt athyglinni við veginn og umhverfið en ýtti á takkann til að stilla símtalið á hátalarann.
–Er eitthvað að frétta? spurði Wesley strax.
–Nei, ekki ennþá, en hjá þér?
–Ég verð kominn á lögreglustöðinaEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Skuggar fortíðar
Smith&Wesson byssuna sína og mjakaði sér nær staðnum þar sem hann hafði skilið hana eftir til að deyja.
Það voru engin ummerki á staðnum lengur.
Tæp 10 ár voru liðin og skógurinn hafði endurheimt svæðið. Það leit alls ekki eins napurlega út og var þakið villtum blómum og vínvið.
Engin för eftir manneskju sem var dregin eftir jörðinni, ekkert blóð.
Árin höfðu þvegið þetta allt í burtu en Jodi sá það, fann lyktina af því, meira að segja bragðið, eins og nú væri sjóðheit nótt í júlímánuði eins og þegar morðinginn var næstum búinn að ganga frá henni.
Húsið skammt frá var niðurnítt.
Hún hafði ekki átt von á að finna aðra tilfinningu en þá að þetta væri svæði þar sem morð hafði verið framið, þar sem tvær manneskjur höfðu verið myrtar.
Hún lagaði takið um byssuna þegar hún heyrði fótatak. Ekki hratt fótatak en gesturinn var ekki heldur að reyna að læðast að henni.
Jodi hafði hlustað eftir öllu sem gæti orðið henni að bana.
Endanlega í þetta skipti.
Hún sneri sér snöggt við, til öryggis ef það væri ekki rétt hjá henni hver var að koma, og miðaði.
–Þú hefðir ekki átt að koma hingað. Röddin var djúp og hás, blanda af ákveðinni rödd lögreglumanns og Texasframburði.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Vetrarkoss
Allt byrjaði þetta með kossi.
Þannig mundi Chloe Clementine atburðarásina að minnsta kosti. Það var vetrarkoss, en sá er ekkert líkur sumarkossi. Í ísköldu loftinu snertast heitar varir og kalla fram fiðring er þær mætast í fyrsta sinn.
Chloe taldi að þennan koss myndi hún muna allt þar til hún dæi úr elli. Um þennan koss og kúrekann sem hún kyssti var hana að dreyma þegar síminn hringdi. Koma hennar til Whitehorse eftir margra ára fjarveru hafði vakið þessar minningar upp af værum blundi.
Hún stundi. Hana langaði til að sofa lengur og halda áfram að rifja þessa yndislegu minningu upp.
Síminn hringdi aftur. Ef þetta var einhver af systrum hennar að hringja fyrir allar aldir skyldi sú fá orð í eyra.
–Hvað? hreytti hún út úr sér í símann án þess að kanna hver væri að hringja. Hún var viss um að það væri Annabelle, yngsta systir hennar, sem var árrisul mjög.
–Halló?
Þetta var kunnugleg karlmannsrödd. Eitt augnablik hélt hún að hún hefði töfrað kúrekann fram með því að hugsa um kossinn.
–Þetta er Justin.
Justin?
Hún settist upp í rúminu. Ótal hugsanirEignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr. -
Harðskeytti verndarinn
TJ St. Clair þoldi ekki símafundi, aðallega ekki þennan símafund.
–Ég veit að það er erfitt að bókin þín skuli koma út fyrir jól, sagði Rachel, markaðssamræmingaraðilinn, og rödd hennar hljómaði hol í hátalaranum í síma TJ í litlu íbúðinni hennar í New York.
–Ég þarf samt ekki að segja þér hversu mikilvægt það er að kynna hana eins og hægt er þessa vikuna svo þú fáir söluna þar sem þú vilt fá hana, bætti Sherry frá útgáfu og kynningardeildinni við.
TJ hélt ró sinni og svaraði ekki strax. –Ég ætla heim til að vera með systrum mínum yfir jólin, ég hef ekki séð þær í marga mánuði. Hún ætlaði að segja að hún vissi hvað það var mikilvægt að koma bókinni á framfæri en satt að segja var hún oft í vafa um hvort stór hluti við burðanna hafði eitthvað að segja, svo að ekki sé minnst á samfélagsmiðlana. Ef lesendur eyddu jafnmiklum tíma á samfélagsmiðlum og TJ hafði þurft að gera efaðist hún um að þeir hefðu tíma til að lesa bækur.
–Er þetta út af hótunarbréfunum sem þú hefur fengið? spurði Clara, umboðsmaðurinn hennar.Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Verð á rafbókVerð á rafbókmeð VSK995 kr.