Ef ég hefði samþykkt að hitta geðlækninn frá alríkislögreglunni eins og yfirmaðurinn vildi, hefði geðlæknirinn örugglega mælt með þessu, hugsaði Sam Connelly þegar hann lagði bílnum fyrir framan gistiheimilið Bachelor Moon.Gistiheimilið var staðsett rétt fyrir utan smábæinn Bachelor Moon í Louisiana og var allstórt hús á tveimur hæðum. Það var umkringt fallegum trjám og fremri verönd in var stór og breið.
Hann var kynæsandi þar sem hann stóð í þröngum hvítum stuttermabol, snjáðum gallabuxum og með viðgerðartöskuna hangandi á grönnum mjöðmunum. Hann var alls ólíkur því sem Brittany Grayson hafði búist við. Hún hafði hringt í Chad Warren, einn af fáum smiðum sem bjó í litla bænum, Black Rock í Kansas
Ég trúi ekki að þú ætlir að gera nokkuð svo áhættusamt, sagði Natalie Sinclair. Grace hallaði sér aftur í eldhússtólnum og brosti til yngri systur sinnar. –Þetta samtal er öfugsnúið. Er ég ekki vanalega að segja eitthvað svona við þig? Þær tvær sátu í eldhúsinu hennar Grace, þar sem andvarinn þetta síðdegi í maí barst inn um opna gluggana og með honum fylgdi sætur ilmur nýs sumars.
Melissa Monroe gat ekki annað en velt fyrir sér hvort hún væri að gera mikil mistök. Hún ók eftir veginum í Texas og fannst hún upplifa „déja vu“. Auður þjóðvegurinn, snjórinn sem féll frá himnum og jólalögin í útvarpinu vöktu upp minningar um þegar hún hafði keyrt þarna síðast. Það var rétt rúmt ár síðan. En þá hafði snjórinn ekki fallið rólega og fallega heldur hafði verið bylur sem neyddi hana loks til að stansa.
Þetta hafði verið dæmigerður, rólegur dagur á fasteignasölunni. Í yfirstandandi kreppu keypti fólk hvorki eignir né seldi í litla bænum Black Rock, Kansas. Layla West færði fæturna til og frá undir skrifborðinu til að leita að öðrum hælaháa skónum sínum. Ef Layla elskaði eitthvað voru það skór. Hún hafði líka fengið arf sem gerði henni kleift að halda ró sinni þótt hún hefði ekki selt hús í mánuð.
Það var ekki fyrr en hún sá rauðu ljósin dansa í baksýnisspeglinum að Edie Burnett leit á hraðamælinn. Hún var á rúmlega fimmtíu kílómetra hraða. Þegar hún færði fótinn af bensíngjöfinni og beygði að gangstéttinni í þessari litlu verslunargötu, sá hún skilti sem gaf til kynna að leyfilegur hámarkshraði væri þrjátíu. Hún bölvaði lágt og stöðvaði bílinn
Fjórir litapakkar, hellingur af föndurpappír, tíu límsaukar og nokkrir kassar af servíettum. Portia Perez brosti með sjálfri sér þegar hún stoppaði bílinn við lágvöruverslunina.Bestu vinkonu hennar, Laylu West, myndi finnast það dapurlegt að á listanum var ekki par af rauðum skóm með tíu sentimetra hælum og eitthvað efnislítið og glitrandi en Layla hafði aldrei unnið við að skemmta tólf litlum krökkum í átta tíma á dag.
Peyton Wilkerson lauk við að skúra eldhúsgólfið, ánægð með gljáandi flísarnar og ilminn af bleikiefninu í loftinu. Hún gekk frá þveglinum og gekk svo að glugga notalega búgarðshússins.Hún starði út, þar sem iðnaðarmennirnir höfðu daginn áður steypt verönd innan við 180 sentímetra háu girðinguna sem afgirti baklóðina. Stoltið fyllti brjóst hennar. Nú var allt að smella saman
Lana Tyler læddist hljóðlega út úr litla svefnherberginu og varpaði öndinni léttar. Það var ávallt talsverð áskorun að svæfa hina tæplega fjögurra ára gömlu Haley og kvöldið í kvöld reyndist engin undantekning. Eftir tvær sögur, baknudd og glas með ávaxtasafa hafði henni þó loks tekið að dusta litlu stúlkuna niður og hún svæfi vonandi í fáeina klukkutíma... ef heppnin væri með henni