A Tennessee Cold Case

Níðingsverk
Níðingsverk

Níðingsverk

Published Apríl 2023
Vörunúmer 110
Höfundur Lena Diaz
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Veski konunnar sveiflaðist um öxl hennar í takt við sítt, brúnt hárið eins og leiðarljós
fyrir manninn sem var á eftir henni. Hafði hún engar áhyggjur af öryggi sínu? Kannski var
hún ferðamaður sem hafði ekki frétt af hvarfi Erin Speck og óleystu nauðgunarmálunum á
svæðinu. Eða heimamanneskja sem þóttist þekkja sig svo vel um í Gatlinburg að það
hvarflaði ekki að henni að hún gæti verið í hættu.
Grayson hafði lært af biturri reynslu fyrir löngu að hættan gat leynst í hverju horni. Einar
dyr sem hafði gleymst að læsa, eitt kærulaust augnablik gat orðið að dauðadómi. Lífið var
brothætt og dýrmæt gjöf sem gat verið hrifsuð af þér á augabragði og skilið líf aðstandenda
eftir í molum.
Hann kreppti hnefana aftur. Núna var hann næstum kominn nógu nálægt þeim til að geta
orðið að einhverju gagni. Þau voru öll að koma að dimmasta hluta götunnar þar sem fyrir
tækjaeigendur höfðu ekki haft fyrir því að kveikja á útidyraljósum við bakdyr verslana
sinna eða dautt var á flestum perunum. Þetta var fullkominn staður til að ráðast á einhvern.
Hann sá það á manninum sem virtist vera að búa sig undir að leggja til atlögu miðað við
líkamstilburði hans.
Konan virtist hika og skrikaði fótur á hæla háum skónum, loks að gera sér grein fyrir
hættunni sem hún var í. Grayson kallaði og tók að hlaupa um leið og maðurinn hentist í
átt að bráð sinni.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is