Welcome to Starlight

Ráðabrugg
Ráðabrugg

Ráðabrugg

Published Desember 2021
Vörunúmer 431
Höfundur Michelle Major
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

orey Hall gekk til mannsins sem var nýfarinn út úr hálfdimmri kránni og reyndi að láta sem sér fyndist stærð hans og kraftar ekki yfirþyrmandi. Hann var hár og íþróttamannslega vaxinn, enda fyrrverandi atvinnumaður í amerískum fótbolta. Í daufum bjarmanum frá ljósastaurnum var erfitt að sjá andlitsdrættina, en hún vissi að í dökka hárinu voru gylltar rendur af því tagi sem eiginkonur íþróttamanna eyddu gjarnan fúlgum fjár í að fá á hárgreiðslustofum. Cory sá að hann hafði ekki rakað sig í nokkra daga og að jakkinn undirstrikaði vel breiðu herðarnar. Hann sneri sér að dyrunum án þess að taka eftir henni. Hún var svo sem vön því að vera ósýnileg þannig að það kom henni ekki á óvart. –Það er lokað, sagði hann og röddin bergmálaði í kyrrðinni. Hann hafði þá tekið eftir henni. En hann hafði ekki fyrir því að snúa sér frá hurðinni sem hann var að læsa. Annaðhvort átti Jordan Schaeffer ekki von á vandræðum að kvöldlagi í smábæ eins og Starlight í Washingtonríki eða taldi víst að hann myndi ráða við árásarmennina. En Cory var í þann veginn að baka honum svo mikil vandræði að hann myndi óska þess að hafa farið gætilegar.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is