Ashlynn fann að það fór hrollur um hana þó að sólin skini milli trjágreinanna og myndaði doppótt mynstur á jörðinni. Hún vafði handleggjunum um sig og hélt fast um piparúðabrúsann í annarri hendinni. Sean, bróðir hennar, hafði samþykkt að hitta einhvern við vatnið og það hafði ekki endað vel fyrir hann. Hún var að vísu ekki á leiðinni til að hitta neinn og Sean hafði farið út um miðja nótt. Hún var á ferðinni um hábjartan dag, annað en kjáninn bróðir hennar, og á stígnum var nóg af göngufólki á ferðinni svo og hjólreiðafólki sem jós rykinu upp á leiðinni upp brattann. Hana sveið í nefið af tárum og hún þerraði nefbroddinn með annarri erminni. Nú gat enginn sagt Sean neitt. Hann hafði haldið úti bloggi um sanna glæpi og gengið mjög vel af því að hann hikaði ekki við að stofna sér í hættu og taka áhættu. Hún varð að feta í fótspor hans ef hún ætlaði að eiga möguleika á að halda blogginu hans áfram. Hún vildi ekki að LA Confidential dæi með bróður hennar. Ashlynn belgdi út kinnarnar og þrammaði áfram. Hún ætlaði að fara alveg að vatninu og svipast um, taka kannski nokkar myndir og bíða eftir næstu skilaboðum, ef þau yrðu fleiri. Ef nafnlausi tengiliðurinn, sem hafði sent henni ábendingu um bíl á kafi í Kawayu-vatninu, myndi ekki senda önnur skilaboð ætlaði hún að leita að annarri sögu til að fjalla um á blogginu. Hún stoppaði undir tré og tók upp símann til að opna kortið af göngusvæðinu en þurfti að stökkva til hliðar til að víkja fyrir skokkurum. Hún kallaði inn í rykmökkinn á eftir þeim: –Hvar á að fara út af stígnum til að komast að vatninu?
Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Hlið fangelsisins lokaðist á eftir Lori. Hún steig fast á bensíngjöfina um leið og hún þurrkaði tár af vanganum með handarbakinu. Tárin komu alltaf eftir heimsóknina. Hún leyfði þeim ekki að koma meðan hún sat andspænis Danny. Hún hafði ekki verið með neinar góðar fréttir fyrir bróður sinn sem var á sjötta ári afplánunar fyrir glæp sem hann framdi ekki. Eins og Danny hefði myrt kærustuna sína? Hann hafði elskað Elenu meira en nokkurn annan í veröldinni. Hann hafði elskað hana af ástríðu. Lágværa röddin í höfðinu á henni hvíslaði: of mikið? Lori bægði þessum orðum frá sér um leið og hún þurrkaði annað tár sem læddist niður vanga hennar. Saksóknarinn hafði haldið því fram að Danny hefði myrt Elenu í hita augnabliksins og þess vegna hafði hann verið ákærður fyrir manndráp en ekki morð. Hann hafði játað en bara til að fá þennan samning. Hann hafði fullyrt við Lori að hann hefði ekki myrt Elenu og hún trúði honum. Út af fingrafarinu. Hún spretti fingrum á stýrinu, sveitt í lófunum, þegar hún ók út á hraðbrautina sem lá til baka til Los Angeles. Lögreglan hafði fundið fingrafar á vettvangi, þegar Elena var myrt, sem var ekki hægt að bera kennsl á. Það hafði ekki tekist ennþá en lögreglan hafði eiginlega hætt að leita þegar Danny játaði morðið á sig. Lori hafði leitað að eiganda fingrafarsins síðan. Eftir framhaldsskólann hafði hún ætlað í réttarmeinafræði en dularfulla fingrafarið hafði leitt hana yfir í fingrafaragreiningu og hún vann sem fingrafarasérfræðingur hjá lögreglunni í LA. Hún var nýbúin með verkefni hjá starfshóp sem hafði
Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók