EAGLE MOUNTAIN

Samsæri á fjöllum
Samsæri á fjöllum

Samsæri á fjöllum

Published Júlí 2023
Vörunúmer 113
Höfundur Cindi Myers
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Maðurinn lá á grúfu ofan í áveituskurðinum, grænleitt vatnið flaut í kringum hann og grátt hárið á höfði hans breiddi úr sér eins og rytjulegur arfamakki. Ljósbrúnn Stetson kúrekahattur hans lá í rifsberjarunnunum rétt við við brún skurðarins.
–Ég ætlaði að fara að draga hann upp úr skurðinum en sá að hann andaði ekki og ákvað því að betra væri að hafa samband við þig. Perry Webber áveitueftirlitsmaður í Rayford sýslu strauk sér um nefið með gulum tóbaksklút. –Það var áfall að sjá Sam Russell liggja hérna. Ég er búinn að þekkja hann í ein 15 ár og hann er einn traustasti maður sem
ég þekki.
Chris Delray hlustaði á Perry með öðru eyranu á meðan hann virti fyrir sér líkið í skurðinum. –Klukkan hvað fannstu hann? spurði hann.
Perry náði í símann sinn. –Um 25 mínútum áður en ég hringdi í þig, þá hlýtur það að hafa verið í kringum tíu mínútur yfir sjö. Ég varð að hlaupa til baka að bílnum mínum og keyra nokkurn spöl til þess að ná símasambandi.
Chris leit í kringum sig á þurrt og rykugt landslagið. –Hvað fékk þig til að koma hingað?
spurði hann.
–Ég þurfti að opna hliðið á skurði sjö svo 

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is