Stephanie stansaði fyrir utan opnar dyr sjúklingsins til að koma skikki á hugsanirnar. Hún sá að Jason var þegar inni á stofunni. Hluti af samkomulaginu var að Stephanie fylgdist með þessu máli og öðrum sem Jason sæi um næstu sex mánuðina. Það var bæði gott og slæmt að neikvæð umfjöllunin hafði leitt til þess að færri sjúklingum var vísað á Sheffield Memorial. Hún vissi ekki hvernig hún hefði getað sinnt þessum aukaskyldum ofan á allt annað. En morgunógleðin var þó nokkurn veginn hætt núna. Áður fyrr hafði það ekki verið neitt vandamál að hún blandaði sér í hans mál. Þótt yfirmannsstaða hennar sæi til þess að hún gæti ekki eytt of miklum tíma í að sinna sjúklingum, hafði Jason alltaf boðið henni að hjálpa sér í málum sem h