Angi Morgan

Augu snáksins
Augu snáksins

Augu snáksins

Published Apríl 2017
Vörunúmer 4. tbl. 2017
Höfundur Angi Morgan
Verð á rafbókmeð VSK
900 kr.

Lýsing

–Dan, þú veist að Garrison þarf aðstoð við að losna úr þessari klípu og hreinsa nafn sitt, sagði hún. Hún gat hjálpað honum og myndi gera það um leið og hún hafði smjaðrað sig út úr fangageymslunni. –Ég veit bara að þú ert í uppnámi og hefur fulla ástæðu til þess, sagði roskni lögreglustjórinn í Dallam­sýslu og læsti rimlahurðinni. –Gott og vel, þú vinnur, Dan. Ég strengi þess heit sem varalögreglustjóri að ég fer ekki til Austin. Hún krosslagði löngutöng og vísifingur. –Þú mátt ekki við því að missa mig núna. Hver á að sjá um að allir gálausu unglingarnir fari sér ekki að voða? –Þú ert besti lögregluþjónninn í bænum, ég deili ekki við þig um það. Ég er bara að gera það sem vinur þinn, vegalögregluþjónninn, lagði til. Hún gekk að klefadyrunum til þess að Dan gæti losað af henni handjárnin. –Það var óþarfi að setja mig í járn. –Það er ekki satt, heillin, og það veistu, sagði Dan og gaf henni merki um að snúa sér við. –Ef ég hefði ekki komið þér að óvörum værirðu ekki hér. Hann tók af henni járnin og hún neri á sér úlnliðina, alls hugar fegin. Nú var hún frjáls. Eða næstum því. Hún leit á veggina í kytrunni, sem umluktu hana á þrjá vegu. –Þér getur ekki verið alvara með að halda mér hérna. Hve lengi?

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók.

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is