Ást og óvissa

Í felum
Í felum

Í felum

Published Desember 2023
Vörunúmer 366
Höfundur K. D. Richards
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

–Bara aðeins lengra, sagði Erika Powell hughreystandi og leit um öxl. Daisy Haregrove, bókavörður bæjarins og besta
vinkona Eriku, var aðeins fáein skref á eftir henni.
–Úff, þú sagðir það sama fyrir hálfum kílómetra síðan. Ég er alveg búin í fót leggjunum, sagði Daisy og strauk aðsniðn
ar íþróttabuxurnar til að leggja áherslu á orð sín.
Erika hlustaði ekki á hana. Daisy hafði alveg verið til í að bæta fjallgöngu við hefðbundna íþróttaiðkun þeirra þegar
Erika stakk upp á því í apríl, en þegar sumarið var liðið og síðan komið fram yfir áramótin hafði áhugi Daisy á útivist
mikið minnkað.
Þær höfðu að vísu aldrei áður gengið svona langa leið en fyrir nokkrum dögum hafði Erika fundið fyrir eirðarleysi sem
hún gat ekki hrist af sér. Hún vonaðist til að löng og hressandi gönguferð myndi róa hana, en án árangurs.
Hún þrammaði samt áfram eftir moldar slóðanum sem lá þvert yfir landskikann sem hún hefði keypt tveim árum áður.
–Ég hélt að þú vildir losa þig við fimm kíló fyrir vorið, sagði Erika.
–Já, ég vil það, svaraði Daisy másandi.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is