Sjúkrasögur

Langþráð fjölskylda
Langþráð fjölskylda

Langþráð fjölskylda

Published Janúar 2020
Vörunúmer 382
Höfundur Annie Claydon
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Tré skyggðu á bekkinn og gerðu hann að notalegum stað að sitja á þenna heita sumardag. En Rainu Eliott leið langt frá því notalega.
Frá útsýnisstað sínum á litlu gróðursælu torgi umkringdu þriggja hæða átjándu aldar húsum sem flestum hafði verið breytt í skrifstofur, gat hún séð dyrnar á höfuðstöðvum Watchlight sjóðsins. Hún hafði fylgst með þeim síðasta klukkutímann og reynt að safna kjarki til að ganga inn.
Það var ekki svo erfitt að biðja góðgerðasamtök um hjálp, var það? Það var gott fólk sem vann fyrir góðgerðasamtök. Fólk sem hafði skilning. En þegar ein þessara góðu og skilningsríku manneskja reyndist vera fyrrverandi eiginmaður varð allt mun flóknara.
Ef hún hefði komið til að óska aðstoðar fyrir sjálfa sig hefði þetta verið einfalt. Raina hefði hikað við dyrnar og gengið síðan burt. En hún hafði lofað að gera sitt besta fyrir Anyu og á þessu augnabliki var Watchlight-sjóðurinn ekki eingöngu besti kosturinn, hann var eini kosturinn.
–Kallarðu sjálfa þig móður? muldraði hún við sjálfa sig. Að geta kallað sig móður var nokkurn veginn það eina góða sem hafði gerst undanfarin ár, því fylgdi vanalega ánægjutilfinning og löngun til að taka Anyu í fangið og faðma hana þétt að sér.
Og ef hún ætlaði að kalla sig móður varð hún að gera hvað sem var fyrir barnið sitt, hversu erfitt sem það væri. Hún hafði lokið við að fylla umsóknarform sjóðsins út og orðið sér úti um öll fylgiskjölin sem óskað var eftir. Afhendingin sjálf var einfaldlega spurning um að skila pappírunum af sér í móttökunni.
Hún dró stórt, brúnt umslag upp úr töskunni sinni og starði á utanáskriftina.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

 

 

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is