The Parent Portal

Móðurhjarta
Móðurhjarta

Móðurhjarta

Published Febrúar 2021
Vörunúmer 421
Höfundur Tara Taylor Quinn
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Dagurinn byrjaði ósköp venjulega.
Hinn þrjátíu og sex ára gamli Woodrow Alexander, sem alltaf var kallaður Wood, vatt sér fram úr rúminu og smeygði
sér í léttu náttbuxurnar sínar. Hreyfingar hans voru í fullkomnu samræmi við hreyfingar Retró, sem var sex ára gömul labradortík. Hún stökk niður úr rúminu, teygði úr sér og rölti til hans.
Hin ljósa Retró stóð vörð við baðherbergisdyrnar meðan Wood gekk örna sinna. Síðan röltu þau út úr svítunni og fram
ganginn í átt að eldhúsinu. Þau forðuðust stofuna og lokuðu dyrnar hinum megin við hana. Þar var hin svítan í húsinu. Elaina þurfti á svefni að halda.
Wood kom kaffivélinni í gang. Þau fyrrverandi konan hans voru bæði hrifnust af dökkristuðu, kólumbísku kaffi. Meðan
hann hellti upp á könnuna skaust Retró gegnum hundalúguna og út í garðinn.
Hann hafði sett upp útiarin við sundlaugina meðan þau Elaina voru enn gift. Hún hafði óskað eftir því. Vinsta megin við arininn hafði hann komið fyrir útieldhúsi. Hann hafði gróðursett rósarunna og byggt sér verkstæði í horninu yst. Að ósk Elainu hafði hann svo látið annað í garðinum eiga sig. Hún vildi hafa hann sem náttúrulegastan. Sums staðar óx gras, sem hann sló reglulega, en annars staðar einkenndist garðurinn af trjám sem uxu hér og þar og rótum sem stóðu upp úr jörðinni. Wood hafði 

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is