The Bravos of Justice Greek

Ævintýri í Karíbahafi
Ævintýri í Karíbahafi

Ævintýri í Karíbahafi

Published Júní 2019
Vörunúmer 401
Höfundur Christine Rimmer
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Klukkan var stundarfjórðung gengin í sex þennan sólríka apríldag. Dalton Ames sat á bekk í almenningsgarði nálægt
skrifstofu fyrirtækis síns í Denver og sagði við sjálfan sig að hann væri að gera glappaskot.
Hann hefði átt að krefjast svara áður en hann féllst á að hitta hana. Hann hefði átt að spyrja hana hvers vegna í
ósköpunum hún hefði haft samband við hann upp úr þurru og hreinlega orðið að tala við hann undir fjögur augu. Gæti eitthvað gott leitt af því að þau hittust núna?
Nei. Ekkert. Það vissi hann.
Samt var hann hingað kominn með skjalatösku við fætur sér og magann í hnút. Og beið. Fáránlega spenntur að sjá
hana.
Ekki var víst að neitt yrði úr neinu. Það vissi hann vel. En samt var hann spenntur.
Hugsanir hans gufuðu upp er hann sá hana nálgast. Þarna kom hin brosmilda Clara Bravo, yndislegri en nokkru sinni,
klædd síðum, hvítum kjól og stuttum gallajakka, með gljáandi dökka hárið sitt og freistandi varirnar.
En þessa stundina brosti hún ekki. Hún var alvarleg á svip og horfði niður fyrir sig.
Clara.
Mikið var hún falleg.
Og kasólétt.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is