Tara Taylor Quinn

Barn til bjargar
Barn til bjargar

Barn til bjargar

Published Apríl 2021
Vörunúmer 423
Höfundur Tara Taylor Quinn
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Þetta er bara rannsókn. Þú ert ekki að skuldbinda þig að neinu leyti enn.
Orðin ómuðu í höfðinu á Elainu Alexander þegar hún fékk sér sæti og var komin aftur í dökkbláa læknafatnaðinn sinn.
Skoðunin sem hún hafði farið í rétt í þessu var síðasta stig forrannsóknar, ráðgjafar og pappírsvinnu sem hún hafði þurft að ganga í gegnum á vegferð sinni til þess að stofna eigin fjölskyldu.
Nú beið hún eftir viðtali við Cheryl Miller, sem var sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp á frjósemislækningastofunni Foreldragáttinni.
Þetta er bara rannsókn. Þú ert ekki að skuldbinda þig að neinu leyti enn.
Hún var taugaóstyrk. Jafnvel dálítið smeyk. En hún var harðákveðin í að gera þetta. Þær Cassie höfðu verið svilkonur í tæpt ár. Cassie hafði bara verið að reyna að róa Elaina þegar þær spjölluðu saman í síma einn morguninn. Orð Cassie höfðu ekki dugað til að slá á kvíðann, en hins vegar höfðu þau sannað fyrir henni hversu mjög hún þurfti á því að halda að vita að hún hefði komið vel út úr öllum frumrannsóknunum og gæti fengið tíma fyrir uppsetningu fósturvísanna ef hún tæki þá ákvörðun að halda sínu striki.
Hún hafði rætt við starfsfólkið í Foreldragáttinni um glasafrjóvgun, þannig að egg úr henni yrði frjóvgað með sæði úr Peter utan legsins og síðan yrði fósturvísinum komið fyrir í leginu á henni, en Elaina hafði fremur kosið að láta sprauta sæðinu inn í sig og láta barnið verða til í móðurkviði

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is