Soraya Lane

Óvænt kraftaverk
Óvænt kraftaverk

Óvænt kraftaverk

Published Ágúst 2016
Vörunúmer 367
Höfundur Soraya Lane
Verð á rafbókmeð VSK
900 kr.

Lýsing

–Afsakið, muldraði hann og snerti olnboga konu sem hann smeygði sér framhjá. Á meðan horfði hann niður á við til að þurfa ekki að tala við neinn.
Eftir nokkra stund fóru allir að líta eins út... sjór af svörtum kjólfötum og hvítum skyrtum í bland við glæsilegar konur í glitrandi kjólum. Hann ætti að vera farinn að venjast því en hlutverk svarta sauðarins sem hafði tekið sig á hafði aldrei verið það sem hann vildi og ekki heldur það að taka þátt í veislum fína fólksins.
Vá. Blake rétti úr sér og horfði yfir salinn. Hún stóð ein, sneri baki í gluggana sem buðu upp á útsýni yfir New York.
Dökkrautt hárið féll laust yfir axlirnar, varaliturinn var skærrauður og áberandi upp við föla húðina. Hún var eins og fullkomin dúkka, bar sig óaðfinnanlega, var með kampavínsglas í annarri hendinni og pínulítið veski í hinni.
Í sal þar sem allar konurnar litu eins út, með fullkomna greiðslu og í svörtum kjólum, var hún eins og ferski andblærinn sem hann hafði þráð nokkrum andartökum áður.
Blake sóaði tímanum ekki. Hún var ein, sem þýddi að annað hvort beið hún eftir herranum sínum eða var í raun og veru ein. Hvort heldur sem var vildi hann ná til hennar á undan öðrum. Hann forðaðist kannski að skjóta rótum og kvænast, en að kynna sig fyrir fallegri konu myndi gera kvöldið mun áhugaverðara.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók.

 

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is