RANCHO Eperanca

Ógleymanleg nótt
Ógleymanleg nótt

Ógleymanleg nótt

Published Maí 2023
Vörunúmer 448
Höfundur Judy Duarte
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Clay Hastings sat við stóra og mikla eikarskrifborðið á skrifstofu sinni á búgarði fjölskyldunnar og var að fara
yfir lagaskjal. Hann var niðursokkinn í skjalið þegar dyrnar voru opnaðar og faðir hans kom inn án þess að banka.
Hann hélt á kristalsglasi með eftirlætisviskíinu sínu.
Adam Hastings baðst ekki afsökunar á ónæðinu frekar en venjulega. Hann tilkynnti bara ástæðuna fyrir því. –Þú
þarft að fljúga til Randolph í Koloradó í kvöld, Clayton.
Ég sagði flugstjóranum að gefa upp flugáætlunina og fylla á þotuna.
–Hvað er um að vera?
–Ég var að tala við einkaspæjarann minn í símann.
Hann sagði að Alana Perez væri á málþingi naugriparæktenda þar. Ég hef gert henni nokkur mjög góð kauptilboð í búgarðinn, en hún fellst ekki á neitt þeirra. Nú svarar hún ekki einu sinni þegar ég hringi.
Clay hallaði sér aftur í skrifborðsstólnum og krosslagði hendurnar. –Hún vill greinilega ekki selja.
–Það skil ég vel. En rannsóknin leiddi í ljós að Lazy M er í niðurníðslu og þarfnast mikilla viðgerða og viðhalds.
Þar á ofan veit þessi Perez-kvenmaður ekkert um búrekstur. Það er ekkert vit í því fyrir hana að halda í eign
sem hún hefur ekki efni á. Þess vegna vil ég að þú hittir
hana augliti til auglitis og sannfærir hana um að hagsmunum hennar væri best borgið með því að selja mér jörðina.
Faðir Clays hafði byggt upp mikið nautgriparæktarveldi í Texas. En af ástæðum sem hann hafði enn ekki

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is