Rachel Lee

Stríðshetjan
Stríðshetjan

Stríðshetjan

Published Desember 2018
Vörunúmer 395
Höfundur Rachel Lee
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Það var komið myrkur þegar Zane McLaren ók í hlað. Hann lagði sendibílnum þannig að nýbyggði rampurinn væri nálægt
rennihurðinni á hlið bílsins.
Það var tilbúið. Gamla ættaróðalið var búið undir tilveru hans í hjólastólnum og einungis aðstoðarhundurinn í framsætinu við hliðina á honum virtist vera ánægður með að ferðalagið skyldi vera búið. Golden retriever-tíkin Nell gaf samþykki sitt til kynna með gelti þegar hann drap á vélinni.
Hann hafði valið að koma heim að kvöldlagi. Allir íbúar Conardsýslu í Wyoming voru án efa búnir að heyra að Zane
McLaren væri að koma heim í fyrsta sinn frá því að foreldrar hans voru jarðsungnir fyrir fimmtán árum. Ramparnir sem
hann hafði látið reisa áður en hann kom gaf til kynna líkamlegt ástand hans, væri fólk ekki fyrir löngu búið að frétta það
frá vinnumönnunum eða ráðskonunni.
Þeir sem vildu smjatta á heimkomu hans höfðu áreiðanlega gert það nú þegar. Pilturinn sem verið hafði frábær íþróttamaður í miðskóla var kominn í hjólastól tuttugu árum síðar eftir að hafa gegnt herþjónustu. Sumir höfðu ábyggilega hrist höfuðið, aðrir fyllst forvitni.
Forvitni manna hafði valdið því að hann kaus að koma heim í myrkri. Hann var ekki tilbúinn að standa andspænis

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is