Mercy Ridge

Verndarhönd
Verndarhönd

Verndarhönd

Published Maí 2023
Vörunúmer 359
Höfundur Delores Fossen
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Barrett Logan lögreglustjóri miðaði vasaljósinu niður í skurð og var að leita að líki.
Hann sá það ekki en hann vissi líka að hann myndi ekki finna neitt. Það var vandamálið við
að fá nafnlausa ábendingu. Það gæti einhver verið að plata. En þar sem hann var lögreglu
stjórinn í Mercy Ridge, Texas þá var þetta hluti af starfi hans.
Sérstaklega þessi ábending þar sem hann hafði fengið hana í gegnum skilaboð úr óþekktu
númeri.
Það er blóð nálægt bæjarmörkunum. Hún gerði það loksins. Hún myrti hann.
Barrett vissi ekki hver hún var en það var ekki eina orðið sem stóð upp úr að hans mati. Blóð,
loksins og myrti greip athygli hans líka. Ef þetta var hrekkur þá hafði sá sem sendi skilaboðin
viljað að hann stykki upp úr stólnum sínum til þess að rannsaka þetta sem fyrst.
Hann leit í kringum sig og gekk að bílnum sínum sem hann hafði skilið eftir í vegarkantin
um. Hann hafði sett ljósin á og var með háu ljósin á ef einhver skyldi vera á vappinu á þess
um tíma sólarhrings. Það var ekki líklegt. Þetta var sveitavegur og langt á milli bæja. Klukkan
var líka að vera eitt að nóttu til og flestir farnir að sofa. Mercy Ridge var ekki beint partíbær.
Barrett lýsti upp skiltið sem var minnst á í skilaboðunum. Þetta skilti benti ekki bara

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is