Olíubaróninn Gabe Dawson var í viðskiptaferð í Malasíu, langt í burtu frá Vengeance í Texas. Um síðir tók hann upp tólið á símanum á hótelberginu. –Gabe. Þú verður að koma heim. Strax. Það er Melinda, sagði aðstoðarmaðurinn hans. Þegar hann heyrði nafn fyrrverandi eiginkonu sinnar stirðnaði hann. Hann settist á rúmstokkinn og bjó sig undir slæm tíðindi. –Henni var rænt. Aðstoðarmaðurinn sagði honum það sem hún vissi, en það var lítið. Fullljóst var þó að hvarf hennar var af mannavöldum. Í kjölfar áfallsins sótti á hann söknuður og hann fór að hugsa um fortíðina og rifja upp góðu dagana með Melindu í upphafi sambands þeirra. Þá höfðu þau bæði verið í framhaldsnámi í háskóla og námið hafði veist þeim auðvelt. Þau voru yfir sig ástfangin og ákveðin í að setja mark sitt á heiminn. Melinda hafði verið enn staðráðnari í því en hann. Hún hafði verið ákveðin í að verða fræg og nota alltaf sitt eigið ættarnafn, eins og hún vildi að allir sem höfðu þekkt hana frá bernsku vissu hverju Melinda Grayson hefði fengið áorkað. Þetta skipti hana svo miklu máli að annað sat á hakanum. Að lokum hafði hún meira að segja lokað dyrunum á hann. Þegar hann leit til baka bjóst hann við að þau hefðu byrjað að færast hvort frá öðru strax eftir að þau gengu í hjónaband hjá sýslumanni fyrir tíu árum. Melinda hafði ómældan áhuga á öllu sem flokkaðist undir félagslegt óréttlæti en hann hafði viðskiptavit og varð fljótlega mikils metinn í þeim heimi og moldríkur að auki. Að því kom að hann uppgötvaði að hann, sem orðinn var milljarðamæringur, var í raun holdgervingur alls þess sem Melinda barðist svo hatrammlega gegn
Velkominn í fyrstu bókina í Wilder-ættarsögunni sem fjallar um tvo bræður, tvær systur og sjúkrahús. Fyrst hittum við systkinin við sorglegt tilefni, útför föður þeirra, dr. James Wilder, manns sem var dáður í samfélagi sínu. James var gamaldags læknir og sjúkrahúsið hans,Walnut River-sjúkrahúsið, dró til sín marga frábæra lækna. tveir þeirra eru Peter Wilder og yngri systir hans, Ella.
Það tók hana augnablik að átta sig á því að andvarpið sem bergmálaði í litla svefnherberginu sem þjónaði hlutverki skrifstofu kom frá henni sjálfri. Eve Walters dýralæknir var niðursokkin í hugsanir um fortíðina og annars hugar og hafði haldið að þessa, þýski fjárhundurinn sem hún bjargaði frá grimmum eiganda tæpum tveimur árum áður, hefði verið að andvarpa. Það kom fyrir að Tessa, sem lá þessa stundina undir skrifborðinu hennar, andvarpaði eins og manneskja.
Ég hef áhyggjur af henni, Brian. Lila Cavanaugh leit í augu eiginmanns síns í langa speglinum yfir ísbláa vaskinum í baðherberginu þeirra. –Svona hefur hún aldrei hagað sér áður. Þau voru bæði að flýta sér, vildu bæði koma snemma í vinnuna en alls ekki af sömu ástæðu