Lena Diaz

Ögurstund
Ögurstund

Ögurstund

Published Júní 2017
Vörunúmer 6. tbl. 2017
Höfundur Lena Diaz
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Það var ómögulegt að aka bíl inn í graslendið, inn á milli sýprustrjáa og fenjaviðar, nema bíllinn væri á flotholtum. Ryðgaði bíllinn hans Eddie var á sléttum dekkjum sem voru við það að springa. Engin flotholt sjáanleg.
Colton ók út á vegaröxlina rétt við brú sem lá yfir ræsi. Þarna hafði GPS-sendirinn sýnt að Eddie var niðurkominn rétt áður en hann beygði inn í mýrlendið. Það hafði ekki gagnað neitt að láta tæknina um að elta þann grunaða. Hann hefði átt að halda sig nær og hafa augun á Eddie frekar en að treysta á sendinn. Þegar ungi maðurinn beygði út á milliríkjaveginn hafði Colton haldið að hann gæti orðið smeykur ef hann sæi sama svarta Mustanginn í baksýnisspeglinum allan tímann svo hann hafði hægt á sér.
Hvar var vandræðagepilinn núna? Greinilega ekki á þjóðveginum og ekki á vegaröxlinni. Ef GPS-tækið hafði rétt fyrir sér og hann hafði ekið hérna út af veginum gat hann ekkert farið.
Há girðing lá meðfram þessum hluta vegarins á svæði sem gekk undir nafninu Alligator Alley.
Girðingin kom í veg fyrir að villt dýr þvældust út á veginn og yllu slysum. Samt sýndi punkturinn á tækinu að maðurinn sem Colton elti hafði ekið í suður, framhjá girðingunni.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is