Janie Croush

Í bæli ljónsins
Í bæli ljónsins

Í bæli ljónsins

Published Júní 2016
Vörunúmer 6. tbl. 2016
Höfundur Janie Crouch
Verð á rafbókmeð VSK
900 kr.

Lýsing

Evan Karcz vaknaði á sama hátt og hann  hafði vaknað alla daga síðasta eitt og hálfa árið...
með óttasleginn grát Juliet Branson að óma í huganum eftir draumana.
Evan spratt ekki á fætur og greip skammbyssuna eins og hann hafði gert í fyrstu. Hann þurfti
ekki heldur að hlaupa inn á baðherbergið og kasta upp.
Nú andaði hann rólega, lét hægjast á hjartanu og starði upp í loftið. Hann ýtti af sér sænginni í
von um að kólna, jafnvel þótt þetta væri snemma vors og enn væri svalt hér í Maryland, nálægt
Washington, DC. Evan þurrkaði svitann af enninu með lófanum.
Hann lá ekki lengi. Klukkan var ekki einu sinni orðin fimm að morgni en það kom ekki til
greina að sofna aftur. Hann gæti allt eins komið sér á fætur og byrjað daginn. Hann klæddi sig í
stuttbuxur og íþróttaföt, setti föt fyrir daginn í íþróttatöskuna.
Hann ætlaði að fara í höfuðstöðvar Omega Sector og taka æfingu áður en dagurinn byrjaði.
Æfing sem flóttaleið, hugsaði Evan og brostiþurrlega. Allt var betra en að liggja í rúminu og
hafa ekkert hjá sér nema sektarkenndina.
Erfiður dagur beið hans og hann ætti ekki að vera hissa á að draumurinn skyldi koma aftur og
vera afar lifandi. Í dag gæti hann ekki komist hjá því að sjá persónuna í óþægilegum draumum
sínum... fyrrverandi félaga sinn, Juliet Branson.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók.

 

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is