HETJURNAR

Nágranninn
Nágranninn

Nágranninn

Published Ágúst 2016
Vörunúmer 8, tbl. 2016
Höfundur Debra Webb
Verð á rafbókmeð VSK
900 kr.

Lýsing

–Nei. Hún kom til hans og kyssti hann. –Ég átti leið hjá og datt í hug að við gætum orðið samferða.
–Það er fínt. Það er bara einn stuttur fundur eftir hjá mér.
Það var bankað. Fjandinn. Hann yrði brátt að setja einkalífið í forgang.
Jo blikkaði hann. –Ég bíð í móttökunni.
–Takk. Hann horfði á eftir henni, þakklátur fyrir að hafa fengið annað tækifæri með konunni sem skipti hann máli, konunni sem skildi mikilvægi starfs hans.
Jo var fagleg og sagði ekkert við manninn í gráu jakkafötunum sem gekk inn þegar hún gekk út.
–Lokaðu dyrunum, sagði Thomas við gestinn. –Og fáðu þér sæti.
Riley O‘Brien sérfræðingur hlýddi.
Thomas leit af myndinni af lögreglustjóranum í Belclare og á manninn sem sat þolinmóður og beið.
–Takk fyrir að bregðast svona fljótt við.
–Já, herra.
Thomas hikaði. Enn eitt merki um það að ákvörðunin um að fara á eftirlaun var rétt. Maður í hans stöðu mátti ekki sjá eftir verkefnunum sem hann útdeildi en það sem hann þurfti að biðja O‘Brien um var ekkert smáræði.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók.

 

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is