HETJURNAR

Hættulegur leikur
Hættulegur leikur

Hættulegur leikur

Published Nóvember 2016
Vörunúmer 11. tbl. 2016
Höfundur Debra Webb
Verð á rafbókmeð VSK
900 kr.

Lýsing

Hann skildi vel skuldbindingu í starfi og fjölskyldu, hafði lokið við menntun sína og unnið í sex ár fyrir strandgæsluna. Þetta orð minnti hann þó of mikið á þrjár eldri systur  sínar og hvernig þær reyndu stöðugt að koma einhverjum konum á hann. Þær notuðu orð eins og stöðugleika, hughreystingu, börn. Eins og þeirra eigin börn væru ekki nóg til að halda öllum uppteknum. Þetta var bölvun þess að vera yngsta barnið og eini strákurinn í fjölskyldunni, hugsaði hann. Hann elskaði þær allar og var þakklátur fyrir það að hæfni hans og starf höfðu sett eins konar höggpúða á milli þeirra. Strandgæslan hafði hentað honum vel og ekki einu sinni systur hans höfðu vogað sér að tala illa um starfsval hans. Nú töldu þær að hann væri í venjulegri dagvinnu í DC og reyndu alltaf að koma honum á blind stefnumót þegar hann kom í heimsókn heim, í von um að einhver krækti í hann og fengi hann til að flytja nær heimahögunum. Þær virtust ekki láta hans eigin óskir trufla sig. Hann var þrítugur og ekki tilbúinn í eiginkonu og börn. Hann var ánægður með spennuna sem fylgdi því að vera Sérfræðingur hjá úrvalsliði Thomas Casey. Hann vissi að það að fara út og gera hluti sem skiptu máli í heiminum útilokaði ekki sambönd... margir Sér fræðingar voru trúlofaðir eða kvæntir... en það var samt erfiðara að búa til eitthvað varanlegt. Hann var ekki tilbúinn í það. Ekki enn. Það var nægur tími til að finna réttu konuna.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók.

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is