EAGLE MOUNTAIN

Mannshvarf á fjöllum
Mannshvarf á fjöllum

Mannshvarf á fjöllum

Published Júní 2023
Vörunúmer 112
Höfundur Cindi Myers
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Lauren Baker keyrði eftir aðalgötu Eagle Mountain og hugsaði með sér að Courtney Baker mágkona hennar hlyti að elska að búa þarna því rómantíski byggingastíll Viktoríu tímans, sem var allsráðandi í bænum, var algjörlega í hennar anda.
Lauren ók rólega og fylgdist með fólk inu sem gekk eftir gangstéttunum í von um að koma auga á ljóshærðan koll Courtney.
Auðvitað vissi hún að það yrði ekki svona auðvelt að finna hana en það mátti alltaf halda í vonina.
Kvenröddin úr GPStækinu í bílnum sagði henni að taka vinstri beygjuna sem var framundan og nokkrum mínútum síðar
lagði hún bílnum fyrir framan lögreglustöð ina sem þjónaði Rayford héraði. Stressuð athugaði hún útlit sitt í baksýnisspeglinum og strauk yfir ljósbrúnt hárið, svo smeygði hún sér út úr bílnum og gekk að inngangi
lögreglustöðvarinnar.
Það klingdi í bjöllu þegar hún gekk inn í anddyrið. –Halló, sagði kona. –Get ég að stoðað þig?
Lauren tók af sér sólgleraugun og virti fyrir sér hvíthærða konuna sem sat við móttöku borðið. Konan var með fjólublá gleraugu, bleiklakkaðar neglur og höfrungaeyrnalokka.
–Vantar þig eitthvað, sagði hún aftur?

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

 

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is