Drew Trevelyan mjakaði sér út úr bílnum, staldraði andartak við til að anda sjávarloftinu djúpt að sér. Hann hafði alltaf verið hrifinn af tærleika morgunsins hérna, af því hvernig hafið virtist teygjast enn lengra en skjólgóð víkin í flóanum sem glitraði af litum sem breyttust sífellt. Þegar bygging nýja dýraspítala Dolphin Cove hafði staðið yfir hafði hann oft komið hingað, bara til að sitja í hálftíma áður en hann fór til starfa í litla rýminu sem hann deildi með Ellie Stone... Drew brosti. Margt hafði breyst á undanförnum vikum. Hann hafði snúið aftur heim til Dolphin Cove eftir mánuði á sjúkrahúsi og í endurhæfingu, og komist að því að sá sem leysti hann af hafði farið. Gamall vinur hans og fyrrverandi unnusti Ellie, Lucas Williams, hafði verið eini möguleiki Drew á afleysingu og það eina sem Drew gat gert var að horfa hjálparvana á uppnámið sem það olli. Mun gleðilegri þróun mála varð til þess að Drew varð að minna sig á að kalla Ellie núna Ellie Stone-Williams, ekki Ellie Stone. Spítalinn hafði samt ekkert breyst og morgnarnir voru jafn friðsælir hérna og þeir höfðu verið þegar þau Ellie fluttu inn fyrir tveimur árum. Á löngum tíma höfðu byggingarnar aðlagast umhverfinu, mosi var farinn að vaxa á steinunum sem voru uppistaða tæknimiðstöðvarinnar og skurðstofunnar á hinum enda tíu ekra svæðisins. Hérna hafði viðarrammi aðalbyggingarinnar
Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók
Ellie lyfti litla loðboltanum upp að andliti sínu og knúsaði hann. Hvolpatími eftir erfiða aðgerð var alltaf endurnærandi. –Hver er besti pínu ponsu hvolpurinn? Kolsvarti labradorinn tyllti loppunni á nefið á henni og sleikti kinn hennar með pínulitlu bleiku tungunni. Þrátt fyrir að hún hefði átt milljón hvolpastundir eins og þessa var hjarta Ellie samt sem áður að rifna á saumunum. –Þú ert svo sannarlega sá sætasti. Eins og til að mótmæla fóru allir hinir hvolparnir, skrautleg blanda af gylltum, rauðum, svörtum og einum súkkulaðibrúnum, að klifra upp og detta niður fótleggi hennar, og keppast um knús. Fjögurra vikna gamlir og fullir af lífi. Fullkomið got tíu hvolpa sem náði yfir allt litróf labradorsins. Þetta var síðasta got Esmeröldu, heittelskaðrar labradortíkur Ellie, þó hún vissi að hún væri ekki fullkomlega hlutlaus var hún sannfærð um að það væri fyrir bestu. Hún tók annan upp og andaði að sér yndislegum hvolpailminum. Mmm... Fullkomið. Hún gat ekki beðið eftir að Mav kæmi heim úr brimbrettaskólanum. Hlátur sonar hennar í sambland við hvolpaknús... hreint himnaríki. –Smá hvolpameðferð í gangi? Ellie leit upp og sá læriföður sinn til langs tíma brosa til hennar. –Ha! Þú stóðst mig að verki, Henry. –Erfið aðgerð? –Mjög. Hún sagði honum frá Golden retriver hundinum sem hafði slasast þegar hann hrasaði á meðan hann hélt á stóru priki. –Og munnholið? –Það var gríðarlegt magn af flísum á tungunni og í munninum. Ein stór föst í hálsinum, grey kallinn. Hann er sofandi núna.
Eignastu þessa bók sem rafbók núna!
Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók