Cindi Myers

Veðurteppt
Veðurteppt

Veðurteppt

Published Febrúar 2020
Vörunúmer 72
Höfundur Cindi Myers
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Löggur. Hún var ekki hrifin af þeim heldur og var á leiðinni á heimili sem var fullt af löggum. Ef Lacy Milligan væri ekki ein af bestu vinkonum hennar í öllum heiminum hefði hún snúið bílnum við og ekið rakleiðis aftur til Denver en Lacy var vinkona hennar og það var ekki á hverjum degi sem vinkonur giftu sig. Svo að ekki sé minnst á að það var mikið mál að sjá um veitingarnar í þessu brúðkaupi. Lacy var vel þekkt í Colorado og fjölmiðlar áttu örugglega eftir að fjalla um brúðkaup hennar og Travis Walker lögreglustjóra. Fjölmiðlar höfðu slefað yfir kaldhæðninni í þessu... Lacy ætlaði að giftast manninum sem hafði átt þátt í að koma henni í fangelsi fyrir morð sem hún framdi ekki.
Lögreglustjórinn hafði bætt fyrir það með því að hjálpa til við að fá Lacy látna lausa og þetta allt saman var saga sem fjölmiðlar fengu ekki nóg af.
Þetta gæti verið stóra tækifærið sem Bette þurfi að fá til að koma veitingaþjónustu sinni á kortið. Hvað var smávegis snjór í samanburði við að hjálpa vinkonu sinni og koma starfsframanum betur af stað? Hún hafði þurft að fást við
erfiðari aðstæður en þetta. Hún hafði ekki alltaf valið vel áður fyrr en nú var hún breytt manneskja og í þetta skipti ætlaði hún að láta þetta heppnast.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

 

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is