Charlotte Hawkes

Leyndarmál herlæknisins
Leyndarmál herlæknisins

Leyndarmál herlæknisins

Published Október 2019
Vörunúmer 379
Höfundur Charlotte Hawkes
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Antonia Farringdale læknir hafði hæfileika til að skynja vandræði.
Hún hafði byrjað að þróa þá við hné föður síns þegar þau fylgdust með oft á tíðum úfinni, grárri víðáttu Atlantshafsins frá sjóbörðum gluggum Westlake björgunarbátastöðvarinnar þar sem móðir hennar stýrði bát út til björgunar. Hún lærði að lesa í að­ stæður þegar áhöfnin átti auðvelda nótt fyrir höndum, eða gat búist við erfiðri nóttu fullri af hættum.
Hún hafði fínstillt þá sem læknir, vissi oft á eðlislægan hátt hvort hún ætti við algeng tilfelli hjá sjúklingum sínum, eða þessi fáu tilfelli þar sem um eitthvað sjaldgæfara var að ræða.
Og hún hafði fullkomnað þá sem bráðalæknir á vígvelli, vinnandi í sjúkrahússtjaldi í leiðöngrum í hvaða stríðshrjáða landi sem hún var í þann daginn.
Já, hún gat svo sannarlega skynjað vandræði.
Af hverju, velti hún fyrir sér þar sem hún pírði augun og leit inn í anddyrið á Delburn Bay björgunarbátastöðinni, bara einum og hálfum klukkutíma lengra upp með ströndinni en Westlake, og þar af leiðandi það næsta sem henni hafði tekist að koma heim í meira en áratug, skynjaði hún það svo taugatrekkjandi sterkt, á einmitt þessu augnabliki?
Hreyfingarlaus en vökul stóð hún í dyragættinni. Hún þorði varla að anda á meðan augun leituðu að einhverju óvanalegu.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

 

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is