Cathy Gillen Thacker

Fjórburarnir
Fjórburarnir

Fjórburarnir

Published Maí 2021
Vörunúmer 424
Höfundur Cathy Gillen Thacker
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

–Jæja, sagði hann bráðmyndarlegi Chase McCabe með sinni lágu, kynþokkafullu rödd. –Hlutverkunum hefur loksins verið snúið við.
Mitzy Martin starði á hinn óhagganlega forstjóra þar sem hann stóð við dyrnar hjá henni og minnti meira á óðalsbónda en kaupsýslumann í aðskornu gallabuxunum sínum, stígvélunum og ljósbrúnu bómullarskyrtunni. Hún lét sem hún yrði ekki vör við aukinn hjartslátt og stundi bara þungan til að sýna honum hversu lítið hún fagnaði komu hans.
–Hvað áttu við, kúreki? spurði hún óþolinmóð.
Það brá fyrir hrekkjaglampa í blágráu augunum þegar Chase bar höndina að hattbarðinu og virti hana fyrir sér frá hvirfli til ilja svo að hjartað í henni sló enn örar en áður.
–Hve lengi hefurðu verið félagsráðgjafi hjá barna- og fjölskyldudeild Laramiesýslu? Tíu ár? spurði hann.
Andrúmsloftið milli þeirra var rafmagnað. –Ellefu, svaraði Mitzy og gerði sitt besta til að taka ekki eftir því hvað maðurinn var karlmannlegur og einbeittur að sjá þótt hann væri vingjarnlegur í fasi.
Hún hafði bundið snöggan enda á trúlofun þeirra stuttu eftir að hún tók við því starfi.
–Og allan þann tíma giska ég á að afar fáir hafi glaðst þegar þeir fengu þig í heimsókn. Nú, þegar þú sérð mig standa á dyrapallinum hjá þér, virðist þú finna fyrir því sama og þeir, sagði hann og glotti ótuktarlega

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is