B.J. Daniels

Innbrotsþjófurinn
Innbrotsþjófurinn

Innbrotsþjófurinn

Published September 2018
Vörunúmer 9. tbl. 2018
Höfundur B.J. Daniels
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Hann kunni sannarlega að meta gestrisnina á Cardwell-búgarðinum en vildi samt hafa sinn eigin samastað vegna þess hve oft hann var í Montana. Það var fjölskyldan sem hafði laðað bræður hans hingað aftur, en nú var það ástin og grillmaturinn sem hélt í þá.
Merkilegt hvernig þetta hafði alltsaman byrjað með grillinu, sem var það eina sem allir fimm bræðurnir kunnu.
Þeir höfðu stofnað lítinn grillstað skammt frá Houston og merkilegt nokk hafði reksturinn skotgengið og útibú sprottið upp. Fyrr en varði var litla útigrillið sem þeir höfðu byrjað með orðið að margra milljóna dollara fyrirtæki.
Það hafði verið bróðir hans, Tanner (Tag) Cardwell, sem stakk upp á því að opna fyrsta Montana-útibúið þeirra í Big Sky. Þeim hafði ekki öllum litist á þá hugmynd, en hún hafði reynst góð. Nú voru bræður hans farnir að ræða að opna fleiri staði í Montana. Allir bræður hans fjórir höfðu snúið heim til Montana, en Laramie átti heima í Texas og sagði sjálfum sér að hann hefði engan áhuga á að koma hingað í óbyggðirnar, að minnsta kosti ekki fyrir fullt og allt.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is