Alison Roberts

Feimnin sigruð
Feimnin sigruð

Feimnin sigruð

Published Ágúst 2020
Vörunúmer 389
Höfundur Alison Roberts
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

–Hvað er þetta?
–Ekkert. Annalise Phillips reyndi að brjóta blaðið saman aftur og troða því ofan í umslagið á sama tíma. Yfirvegun
hennar virkaði ekki alveg og Abby yngri systir hennar pírði augun með vantrúarsvip.
–Þetta umslag er með glugga. Þetta er reikningur, er það ekki?
–Þetta er ekkert til að hafa áhyggjur af. Ég með allt undir stjórn. Lisa fylgdist með þar sem Abby stýrði hjólastólnum
sínum að hinni hlið eldhúsborðsins. Hún hafði alltaf haft lag á að sannfæra Abby um að hún gæti bjargað sér og það hafði reynst vera raunin í svo mörg ár að það var orðin sjálfkrafa og einlæg fullvissa. Af hverju var Lisa þá vör við að einhver andsstyggðar kvíði læddist upp að henni í þetta skiptið?
–Sjáðu... Það var gott að það var eitthvað til staðar sem fékk hana til að hugsa um annað. –Það er líka bréf til þín.
Enginn gluggi.
–Í alvöru? Abby færði fartölvuna sína af hnjánum á sér yfir á borðið og teygði sig eftir bréfinu. –Kannski er þetta
staðfesting á tíma í bílprófið. Hún brosti breitt til Lisu. –Ég trúi ekki ennþá að þér hafi tekist að fjármagna breytingarnar
á bílnum mínum. Það er það mest spennandi sem hefur gerst...
Það var góð tilfinning að geta brosað og baðað sig upp úr ljóma þess að hafa afrekað eitthvað 

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

 

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is