Flýtilyklar
Hljóðbækur
Hvarfið
Lýsing
Widow Creek neitaði að ljóstra upp leyndamálum sínum... þangað til núna.
Lexie Forbes kom til Kansas í leit að svörum en það eina sem hún fletti ofan af var morðingi sem var á slóð hennar. Fulltrúi FBI ætlaði samt ekki að hætta örvæntingarfullri leit sinni að sannleikanum um grunsamlega dauðsfallið sem varð henni mikið áfall ... þó að engin í litla, skrýtna bænum vildi tala. Enginn nema kynþokkafulli búðareigandinn, Nick Walker.
Nick hafði sjálfur upplifað harmleik og það eina sem hann vildi var að vera látinn í friði. En það var erfiðara að segja nei við gullfallegu og þrjósku Lexie en að snara naut ... ekki síðst þegar hann áttaði sig á því að þau áttu sameiginleg tengsl sem reyndust afar hættuleg. Áður en leið á löngu var Nick hættur að gera sitt besta að leiða kraumandi spennuna á milli þeirra hjá sér og farinn að gera allt sem hann gat til að tryggja að Lexie yrði ekki næsta fórnarlamb bæjarins.