Ástarsögur

Yfirmaðurinn
Yfirmaðurinn

Yfirmaðurinn

Published Október 2019
Vörunúmer 405
Höfundur Christine Rimmer
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Elise Bravo langaði til að fara í bað. Langt, slakandi bað.
Með mikilli froðu. Hana langaði til að fara úr hverri spjör og binda hárið upp í hnút. Grípa með sér safaríka ástarkilju og leggjast í karið sem hún hafði látið koma fyrir í stóra baðherberginu í þriggja herbergja íbúðinni sem hún átti fyrir ofan veisluþjónustuna sem hún rak í gömlu, fallegu múrsteinshúsi í Justice Creek í Coloradó ásamt Tracy, bestu vinkonu sinni.
Því miður heyrði baðkarið sögunni til. Íbúðin sömuleiðis. Fyrirtækið var horfið líka. Fyrir þremur mánuðum hafði húsið sögufræga brunnið til kaldra kola.
Og besta vinkona hennar hafði flust til Seattle til að hefja nýtt líf.
Nú átti Elise heima í pínulítilli leiguíbúð í hverfi sem ekki var sérlega aðlaðandi. Baðherbergið var á stærð við frímerki og þar var aðeins sturta, ekkert kar.
Upp á síðkastið lá við að Elise féllust hendur og að hún gæfist upp þegar hún var að afgreiða á kaffihúsinu hennar Clöru, systur sinnar, eða hjálpa Jody, mágkonu sinni, í blómabúðinni. Hún var ákaflega vonsvikin með sjálfa sig.
Það var nefnilega ekki eldsvoðinn, sem hafði eyðilagt

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

 

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is