Ástarsögur

Samastaður
Samastaður

Samastaður

Published Nóvember 2018
Vörunúmer 394
Höfundur Rachel Lee
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Wyatt hafði brautskráðst tveimur árum á undan henni, gengið í herinn og unnið í þrjú ár á skrifstofu lögfræðilegs ráðgjafa hersins. Síðan hafði hann snúið heim til hinnar fremur afskekktu Conardsýslu til þess að reka stofuna með föður sínum.
Þau Amber höfðu eitt sinn verið mjög nánir vinir, en aldrei neitt meira en það. Síðustu árin höfðu þau haldið fjarsambandi
og stöku sinnum hist á lögfræðingaráðstefnum og þá snætt saman hádegisverð eða kvöldmat.
Hann var steinhissa á því að hún skyldi hringja. Hún hafði ekki haft samband við hann mjög lengi. Hann varð undir eins
áhyggjufullur.
–Hvað er að, Amber?
–Þú trúir því aldrei. Það er allt í klessu. Áttu klukkutíma aflögu?
–Auðvitað.
Honum varð hugsað til stundarinnar þegar þau Amber sáust fyrst. Hún hafði verið yngri en flestir laganemar, enda hafði
hún lokið miðskólanámi á tveimur árum og BA-námi á þremur.
Hún hafði sem sagt bara verið nítján ára, en hann tuttugu og sjö. Hann hafði tekið sér nokkurra ára hlé eftir háskólanám og reynt sig við hitt og þetta áður en hann hóf framhaldsnám í

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is