Ástarsögur

Leynd og lygar
Leynd og lygar

Leynd og lygar

Published Október 2018
Vörunúmer 393
Höfundur Rachel Lee
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Marisa Hayes stóð uppi á hæð í Kirkjugarði góða hirðisins í Conardsýslu í Wyoming. Það var eins og vorvindurinn blési gegnum hola hjartað hennar og hrifsaði líf hennar með sér. Á plönkunum stóð kista Johnnys, sem brátt yrði látin síga ofan í
gröfina.
Hún gat sig hvergi hrært. Sársaukinn var svo mikill að hann var eiginlega líkastur doða og hún fann því varla fyrir honum.
Nokkrir menn biðu þess að láta kistuna síga. Hún óskaði þess heitt að þessari stund lyki sem allra fyrst.
Í kringum kistuna sá hún legsteina annarra manna og kvenna sem höfðu kvatt jarðvistina. Sumir voru nýir, aðrir svo gamlir að þeir voru farnir að hallast. Plastblóm lífguðu upp á litina hér og þar, en að öðru leyti var fátt hughreystandi við
þennan stað. Ekki var ýkja vel séð um garðinn. Blettirnir voru óslegnir og runnarnir þörfnuðust klippingar. Þetta var í raun
bara sveitakirkjugarður sem hægt var að fara um með góðu móti, en ekkert meira en það. Nokkrar þornurtir höfðu rúllað
inn í garðinn og tekið sér bólfestu þar. Brátt myndu þær halda ferð sinni áfram. Allt gekk sinn gang. Tímans rás varð ekki
stöðvuð.
Hún lagði höndina á kviðinn á sér, sem enn var flatur. Hún hafði aldrei fengið tækifæri til að segja Johnny fréttirnar

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is