Ástarsögur

Húsið á hæðinni
Húsið á hæðinni

Húsið á hæðinni

Published Júlí 2019
Vörunúmer 402
Höfundur Christine Rimmer
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Chloe Winchester hrökk upp með andfælum og gaf frá sér angistaróp.
Hún settist upp í rúminu. Hjartað hamaðist.
Hún leit í kringum sig.
Ekkert. Engin ógn.
Hún var bara í hálfdimmu svefnherberginu sínu um miðja nótt. Tunglsljósið skein inn um mjóa gluggann fyrir ofan
rennihurðina. Hún var úr gleri, en tjöldin dregin fyrir.
–Ekkert, það er ekkert, hvíslaði hún milli þess sem hún saup hveljur. –Bara martröð.
Reyndar var það sama martröðin og venjulega. Í aðalhlutverki var hinn ógnarfarsæli, yfirmáta stjórnsami og skapbráði fyrrverandi eiginmaður hennar, Ted.
En hann var ekki raunveruleg ógn. Ekki lengur.
Ted Davies tilheyrði fortíðinni.
Chloe strauk skjálfandi hendi yfir hárið á sér og vangann og dró andann djúpt nokkrum sinnum uns hartað hægði á
slættinum. Þegar púlsinn var loksins orðinn eðlilegur og svitinn á enninu að mestu þornaður lét hún sig falla aftur á koddann, breiddi sængina yfir sig og lokaði augunum.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is