Ást og undirferli

Eltihrellir
Eltihrellir

Eltihrellir

Published Júní 2020
Vörunúmer 76
Höfundur Lena Diaz
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Hún bar höfuðið hátt og skaut öxlunum aftur, fyllti körfuna sína eins hratt og hún gat og þóttist ekki taka eftir fólkinu sem hvíslaðist á þegar hún gekk framhjá. Héldu þau virkilega að hún vissi ekki að þau voru að slúðra um hana? Hún gat vel ímyndað sér hvað þau voru að tala um.
Er þetta sú sem ég held? Hvað er langt síðan, 10 ár? Af hverju er hún komin aftur í bæinn?
Varstu ekki búin að frétta það? Mamma hennar dó, ég frétti að hún hefði dáið af því að hjartað í henni brast af því að dóttir hennar heimsótti hana aldrei eftir að hún var rekin úr bænum.
Heldur þú að Thornton lögreglustjóri handtaki hana í þetta skiptið?
Fyrnast morð einhvern tímann?
–Gaman að sjá þig í dag frk. Kane. Hr. Dawson
brosti einlægu og hlýlegu brosi bak við afgreiðsluborðið í sælkerahorninu. –Ég var að vonast til að sjá framan í þig að minnsta kosti einu sinni enn áður en þú ferð frá Destiny. Viltu hádegismat? Við erum með nýja sendingu af niðursoðnum svínalöppum.
Hann skellti stoltur stórri krukku á afgreiðsluborðið en innihaldið líktist mest vísindatilraun sem hafði misheppnast hrapallega. 

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

 

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is