Ást og óvissa

Staðgöngumóðirin
Staðgöngumóðirin

Staðgöngumóðirin

Published Júní 2023
Vörunúmer 360
Höfundur Delores Fossen
Verð á rafbókmeð VSK
995 kr.

Lýsing

Kara Holland stóð í myrkrinu og beið eftir morð ingjanum.
Hún heyrði sinn eigin hjartslátt þegar hún hallaði sér að hlöðuveggnum, hún reyndi að hlusta en heyrði ekki neitt. Ekki ennþá. En hún hafði gert allt það sem henni datt í hug til þess að lokka hann fram.
Og hún var tilbúin. Hún var með Glock byssuna í hendinni og hún kunni að nota hana, því mátti þakka þjálfun hennar. Ef það mistækist þá ætlaði hún að nota þjálfun sína í varnarbrögðum. Það var hins vegar ekki öruggt að hún myndi ná að stoppa hann en hún varð að reyna. Hún var orðin þreytt á því að búa við þennan kæfandi ótta.
Loksins heyrði hún eitthvað. Þetta var bíll.
Síðan heyrði hún dyr lokast. Hann hafði loks ins komið.
Það næsta sem hún heyrði var fótatak. Hann fór hægt yfir. Varlega. Hann gekk beint að hlöðunni.
Hún hafði slökkt öll ljós nema í hnakka geymslunni og hún hafði skilið eftir rifu á hurðinni svo að ljósið lýsti aðeins fram. Hún hélt sig í skugganum við baggana þannig að þegar morðinginn kæmi inn þá myndi hún
sjá hann.
Kara heyrði í honum.

Eignastu þessa bók sem rafbók núna!

Rafbækurnar frá okkur getur þú hlaðið beint niður af síðunni okkar þegar þú kaupir bók

Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is