Nýr flokkur

Nú er kominn út nýr flokkur bóka, Ást og undirferli. Fyrsta bókin í seríunni lofar góðu. Sjá meðfylgjandi brot úr bókinni. "Liz Mayfield hafði sparkað af sér skónum löngu fyrir hádegi og nú, með bera fæturna undir rassinum, hunsaði hún svitann sem rann niður bakið á henni. Það hlaut að vera þrjátíu gráðu hiti í forsælu. Gott betur í litlu skrifstofunni hennar, neðst í byggingunni.

Þetta var dagur fyrir sundlaugarpartí og kalda drykki í fallegum glösum. Ekki til að fara í gegnum póst og eiga við ringlaða táninga.

En hún hafði tekið að sér seinni kostinn fyrir nokkrum árum þegar hún hafði hætt í vel launuðu starfi til að taka við starfi hjá Valkostum fyrir ástríkar mæður... VÁM. "


Svæði

Ásútgáfan

Símar 660 6717 /  660 6702
Netfang: asutgafan@asutgafan.is